Sigur Rós:Ágætis Byrjun
From Lyriki
| Ágætis Byrjun | |
| Artist: | Sigur Rós |
|---|---|
| Albums: | Ágætis Byrjun (1999) |
| Composers: | Jón þor Birgisson Kjartan Sveinsson Orri Páll Dýrason Georg Holm |
Bjartar vonir rætast
Er við göngum bæinn
Brosum og hlæjum glaðir
Vinátta og þreyta mætast
Höldum upp á daginn
Og fögnum tveggja ára bið
Fjarlægur draumur fæðist
Borðum og drekkum saddir
Og borgum fyrir okkur
Með því sem við eigum í dag
Setjumst niður spenntir
Hlustum á sjálfa okkur slá
Í takt við tónlistina
það virðist enginn hlusta
þetta er allt öðruvísi
Við lifðum í öðrum heimi
þar sem vorum aldrei ósýnileg
Nokkrum dögum síðar
Við tölum saman á ný
En hljóðið var ekki gott
Við vorum sammála um það
Sammála um flesta hluti
Við munum gera betur næst
þetta er ágætis byrjun
